Fótbolti

Ekki nægir peningar í heiminum til að kaupa Messi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Xavi í leik með Barcelona
Xavi í leik með Barcelona mynd / getty images
Spánverjinn Xavi, leikmaður Barcelona, hefur undanfarið tjáð sig mikið um hvers virði Lionel Messi sé fyrir spænsku meistarana.

Undanfarna daga hafa borist fréttir af því að spænska knattspyrnuliðið Real Madrid sé reiðubúið að greiða 105 milljónir punda fyrir Gareth Bale hjá Tottenham.

Xavi vill með engu móti bera þessa tvo leikmenn saman.

„Það hafa verið miklir peningar í umræðunni í sumar,“ sagði Xavi.

„Það nýjasta eru yfir 100 milljónir punda fyrir Bale. Hann er fínn leikmaður en ef hann er 100 milljóna punda virði eru ekki til nægir peningar í heiminum til að kaupa Lionel Messi.“

Barcelona vann Santos 8-0 í æfingaleik um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×