Fótbolti

United gefst upp á Fabregas

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fabregas
Fabregas Mynd / Getty Images
Andoni Zubizarreta, yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona, vill meina að enska knattspyrnuliðið Manchester United hafi gefist uppá að fá spænska miðjumanninn Cesc Fabregas frá liðinu.

United hefur í tvíganga boðið í leikmanninn í sumar og án árangurs.

„Forráðamenn United hafa mikinn áhuga á leikmanninum en þeir hafa áttað sig á því að hann er ekki til sölu.“

„Þeir ensku hafa gefist upp á því að fá Cesc [Fabregas] til liðsins og það gleður okkur mikið hér í Barcelona. Hann er magnaður leikmaður sem hefur alltaf reynst liðinu vel. Hann er okkar leikmaður númer fjögur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×