Fótbolti

Marca: Ronaldo hefur gert nýjan samning við Real Madrid

Stefán Árni Pálsson skrifar
Cristiano Ronaldo
Cristiano Ronaldo Mynd / Getty images
Spænska blaðið Marca fullyrðir í dag að Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, hafi nú þegar skrifað undir nýjan samning við félagið.

Leikmaðurinn hefur verið orðaður við endurkomu á Old Trafford í allt sumar þar sem hann myndi leika á ný með Manchester United.

Samkvæmt spænska blaðinu hefur hann gert samning við Real Madrid út leiktíðina 2018.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×