Fótbolti

Arnór opnaði markareikninginn með glæsimarki | Myndband

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Arnór Smárason í búningi Helsingborgar.
Arnór Smárason í búningi Helsingborgar. Mynd/Heimasíða Helsingborgar
Skagamaðurinn Arnór Smárason hefur farið vel af stað með sínu nýja liði Helsingborg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Íslenski landsliðsmaðurinn spilaði sinn þriðja leik með liðinu í gær eftir vistaskiptin frá Esbjerg. Helsingborg hafði unnið fyrri leikina tvo og stefndi í áframhald þegar Arnór kom liðinu í 1-0 á útivelli gegn Djurgården um miðjan fyrri hálfleikinn.

Markið skoraði Arnór með fallegu hægrifótarskoti utan teigs. Heimamenn sneru hins vegar við blaðinu og unnu nokkuð óvæntan 2-1 sigur á toppliðinu.

Markið hjá Arnóri má sjá með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×