Fótbolti

Umfjöllun og viðtöl: FH - Austria Vín 0-0 | Draumur FH-inga úti

Stefán Árni Pálsson í Kaplakrika skrifar
FH-ingar eru úr leik í forkeppni Meistaradeildarinnar í fótbolta eftir markalaust jafntefli við austurríska liðið Austria Vín í Kaplakrika í dag. FH-ingum tókst ekki að ná inn markinu sem hefði tryggt þeim framlengingu en Austria-liðið er þar með komið áfram í umspil um sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

FH-ingar hefðu tryggt sér 540 milljónir íslenskra króna hefði þeim tekist að slá Austurríkismennina út og þeir fengu sko tækifærið til þess í þessum leik.

FH léku meðal annars manni fleiri síðasta hálftímann í leiknum en Austurríkismenn bökkuðu aftar á völlinn og vörðu 1-0 forskot sitt frá því í fyrri leiknum í Vín.

Það var skiljanlega nokkuð mikil taugaspenna í leikmönnum FH í upphafi leiks og voru heimamenn fyrstu tíu mínúturnar að slípa sinn leik en þegar leið á fyrri hálfleikinn fór leikur þeirra að batna.

FH-ingar virkuðu afslappaðir og báru greinilega litla virðingu fyrir stórliðið Austria Vín.

Gestirnir náðu ekki að skapa sér góð færi í fyrri hálfleiknum og eina færi FH var skalli Atla Guðnasonar sem fór nokkuð hátt yfir markið. FH var samt sem áður sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og því einvígið galopið eftir fyrstu 45 mínútur leiksins.

FH-ingar gáfu fá færi á sér og voru alltaf hættulegir í skyndisóknum. Brynjar Ásgeir Guðmundsson fékk ágætt færi eftir eina slíka og í nokkur skipti vann FH-liðið aukaspyrnur á hættulegum stöðum sem lítið kom úr.

Kristján Gauti Emilsson fékk flott skallafæri eftir hornspyrnu en náði ekki að koma boltanum á markið og liðsmenn Austria Vín sköpuðu sér síðan gott skallafæri á 68. mínútu.

Austurríkismenn misstu mann af velli á 61. mínútu þegar Markus Suttner fékk sitt annað gula spjald eftir viðskipti við Brynjar.

FH-ingar pressuðu mikið manni fleiri en tókst ekki að ná markinu mikilvæga. Austurrísku leikmennirnir töfðu leikinn við hvert tækifæri og fögnuðu síðan gríðarlega þegar lokaflautið gall.

Heimir: Leikmenn geta farið stoltir frá þessum leik„Ég er gríðarlega svekktur en mér fannst við eiga góðan möguleika á að vinna þennan leik í kvöld,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, eftir leikinn í kvöld.

„Við fengum tækifæri til þess að skora og koma okkur í góða stöðu og því er maður sérstaklega svekktur.“

„Mér fannst leikmenn Austria Vín ekki skapa sér næstum því eins mörg færi og í útileiknum og við náðum að mestu að loka á þeirra plön.“

„Við náðum að nýta okkur ákveðna veikleika sem er í vörninni hjá þeim, plássið milli miðju og varnar.“

„FH-liðið verður aldrei sakað um að reyna ekki eftir leikinn í dag. Við spiluðum virkilega vel í kvöld og menn geta verið stoltir eftir þennan leik.“

Hægt er að sjá myndband af blaðamannafundi Heimis og Ólafs Páls hér að ofan.

Ólafur: Menn eru dofnir eftir svona úrslit„Við erum nokkuð svekktir eftir þennan leik og svolítill dofi yfir leikmannahópnum,“ sagði Ólafur Páll Snorrason, fyrirliði FH, eftir leikinn í kvöld.

„Leikskipulag okkar gekk upp og við gerðum í raun allt rétt þegar kom að liðsuppstillingunni en ákvarðanatökur leikmanna þegar komið var fram á síðasta þriðjung vallarins voru ekki nægilega góðar.“

„Við komumst í góða stöðu og menn náðu ekki að nýta sér hana nægilega vel, ég var ekki nægilega góður persónulega í mínum ákvarðanatökum.“

„Við höfðum alltaf trú á verkefninu og vissum það alveg fyrir leikinn að við ættum möguleika, annars hefðum við bara getað verið eftir heima og horft á leikinn í sjónvarpinu.“

Hægt er að sjá myndband af blaðamannafundi Heimis og Ólafs Páls hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×