Fótbolti

Fanndís tryggði Kolbotn þrjú stig

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fanndís Friðriksdóttir er búin að skora fimm deildarmörk fyrir Kolbotn-liðið.
Fanndís Friðriksdóttir er búin að skora fimm deildarmörk fyrir Kolbotn-liðið. Mynd/ÓskarÓ
Íslenska landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir var hetja Kolbotn í norsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar hún skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri á Amazon Grimstad. Kolbotn er í 4. sæti deildarinnar eftir þennan sigur.

Fanndís skoraði sigurmark sitt á 62. mínútu leiksins. Þetta var fimmta mark Fanndísar á tímabilinu í tólf leikjum en hún er standa sig vel á sínu fyrstu leiktíð í atvinnumennskunni.

Fjórar íslenskar stelpur voru í byrjunarliði Avaldsnes sem tapaði 0-2 á heimavelli á móti norsku meisturunum í Lilleström. Guðbjörg Gunnarsdóttir, Þórunn Helga Jónsdóttir, Mist Edvarðsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir spiluðu allan leikinn fyrir Avaldsnes. Avaldsnes er í 7. sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×