Fótbolti

Leik lokið: Austria Vín - FH 1-0

Stefán Árni Pálsson skrifar
FH-ingar fagna marki Björns Daníels Sverrissonar gegn Ekranas.
FH-ingar fagna marki Björns Daníels Sverrissonar gegn Ekranas. Mynd/Stefán
FH tapaði fyrir Austria Vín, 1-0, í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í dag en leikurinn fór fram í Vín.

Atli Guðnason, leikmaður FH, fékk frábært færi strax á fjórðu mínútu leiksins en markvörður heimamanna kom vörnum við.

Daniel Royer gerði eina mark leiksins eftir 25 mínútna leik en heimamenn fengu nokkur ákjósanleg færi í leiknum.

FH-ingar fara því með ágætis möguleika í síðari leikinn en liðin mætast á ný eftir viku á Kaplakrikavelli.

Sigurvegarinn í einvíginu fer í umspil um laust sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu og tryggir FH sér 540 milljónir íslenskra króna í tekjur.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×