Fótbolti

Mascherano telur að Fabregas verði áfram hjá Barca

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mascherano og Fabregas
Mascherano og Fabregas Mynd / Getty Images
Javier Mascherano, leikmaður Barcelona, er fullviss um að Cesc Fabregas verði áfram hjá liðinu en hann hefur verið orðaður við Englandsmeistara Manchester United undanfarnar vikur.

Fabregas gekk í raðir Barcelona árið 2011 frá Arsenal þar sem hann hafði verið frá árinu 2003. Nú gæti miðjumaðurinn snúið á ný til Englands.

„Ég hef ekkert rætt við hann [Fabregas] en ég held að honum líði vel hjá okkur,“ sagði Mascherano við Sky Sports News.

„Honum líður vel á æfingum, enda er hann uppalinn hjá félaginu og hefur alltaf verið draumur hans að spila með Barcelona.“

„Hann er algjör lykilleikmaður í okkar hópi og ég held að allir vilji halda honum hjá félaginu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×