Íslenski boltinn

"Við breytum ekki vatni í vín"

Eyþór Atli Einarsson skrifar
Mynd/Ernir
„Það er engin spurning að það eru mikil vonbrigði að detta út úr bikarnum.“ sagði Þorlákur Árnason, þjálfari Stjörnunnar eftir tap sinna kvenna í Borgunarbikarnum í kvöld.

„Ég vil engu að síður óska Þór/KA til hamingju. Mér fannst við engu að síður taka leikinn yfir í síðari hálfleik. Frá sextugustu mínútu fannst mér við vera að fara að taka þetta.“ sagði Láki, en þeirra helsti markaskorari Harpa Þorsteinsdóttir var í leikbanni í dag. Megan Lindsey nýr leikmaður Stjörnunnar kom inn í liðið í stað Hörpu.

„Við söknuðum klárlega Hörpu, það er ekki hægt að neita því. Við vorum svona hálf framherjalausar og sköpuðum okkur ekki mikið af færum. Harpa er búin að skora og búa til mikið af mörkum. Við breytum ekki vatni í vín.“

„Hún(Megan) er ekki tilbúin í meira. Hefur ekki spilað lengi og mun hjálpa okkur þegar líður á mótið.“

Þorlákur var ekki sáttur með sína leikmenn sem spiluðu, eða spiluðu ekki, á Evrópumótinu og taldi að þeir sem eftir voru á Íslandi væru í betra standi en þeir sem út fóru.

„Við erum frekar ryðgaðar eftir fríið. Við spiluðum einhverja æfingaleiki en við erum með fimm leikmenn í Svíþjóð og þrír af þeim sátu á rassgatinu allan tímann og hinir tveir voru ekki byrjunarliðsmenn þannig séð. Það er stór biti. fimm af ellefu.“

Ég segi ekki allar séu þær í verra standi en þetta er á ábyrgð leikmanna. Það að fara á úrslitakeppni EM og koma í verra formi heim er til háborinnar skammar. Það er engin spurning að þeir sem eru búnir að vera að æfa hérna á fullu eru í fínu standi.“

„Það tapa öll lið leikjum. Við þurfum að vera andskoti lélegar til þess að tapa leikjum og við sýndum það hérna í dag. Við förum í alla leiki til að vinna þá. Mér fannst Þór/KA eiga þetta skilið. Við bara fundum engar lausnir í dag.“ sagði Þorlákur vonsvikinn að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×