Fótbolti

Íslendingar spiluðu með liðum sínum í Danmörku

Stefán Hirst Friðriksson skrifar
Theodór Elmar Bjarnason í baráttunni í landsleik.
Theodór Elmar Bjarnason í baráttunni í landsleik.
Íslensku atvinnumennirnir Hallgrímur Jónasson og Theodór Elmar Bjarnason voru á sínum stað í byrjunarliðum liða sinna í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Hallgrímur spilaði allan leikinn í vörn SönderjyskE þegar liðið vann góðan 1-0 sigur á Bröndby. Það var Daninn Nicolaj Madsen sem skoraði eina mark leiksins.

Theodór Elmar var allan tíman í byrjunarliði Randers sem gerði 1-1 jafntefli við OB í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Theodór Elmar nældi sér í gult spjald í leiknum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×