Fótbolti

Fabregas vill staðfestingu á mikilvægi sínu hjá Barcelona

Stefán Hirst Friðriksson skrifar
Cesc Fabregas
Cesc Fabregas
Cesc Fabregas, leikmaður Barcelona er sagður ætla að hitta Gerardo Martino, nýráðinn knattspyrnustjóra Barcelona í vikunni í þeim tilgangi á að fá staðfestingu á mikilvægi sínu hjá liðinu.

Mikið hefur verið talað um möguleg vistaskipti Fabregas í sumar og hafa Manchester United til að mynda boðið í leikmanninn.

Varaforseti Barcelona sagði á dögunum að það væri ekki möguleiki á því að Fabregas yrði seldur frá félaginu en nú vill Fabregas fá að vita hversu stórt hlutverk hann mun fá hjá félaginu næsta vetur áður en hann ákveður framtíð sína.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×