Fótbolti

Draumamark Guðjóns dugði ekki

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðjón Baldvinsson skoraði glæsilegt mark fyrir Halmstad sem sótti sænsku meistarana í Elfsborg heim í dag. Gestirnir misstu 2-0 forystu niður í jafntefli.

Gestirnir komust yfir um miðjan fyrri hálfleikinn og í viðbótartíma hans bætti Guðjón öðru marki við. Heimamenn sóttu í sig veðrið í síðari hálfleik og jöfnuðu metin seint í leiknum.

Skúli Jón Friðgeirsson var ekki í leikmannahópi Elfsborg frekar en Kristinn Steindórsson hjá gestunum.

Elfsborg situr í fjórða sæti deildarinnar en Halmstad á í harðri baráttu í botnbaráttunni. Liðið hefur 13 stig eins og þrjú önnu lið en Syrianska er á botninum með 9 stig.

Glæsimark Guðjóns má sjá eftir rúma mínútu í myndbandinu hér að neðan.

H%C3%B6jdpunkter:%20Elfsborg-Halmstad%202-2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×