Fótbolti

Messi treystir á lögfræðingana

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Argentínumaðurinn Lionel Messi er bjartsýnn á að ráðgjöfum sínum takist að greiða úr skattavandræðum sem hann glímir við.

Messi var í júní sakaður um skattsvik ásamt föður sínum. Feðgarnir, sem báðir neita sök, voru sagðir hafa talið ranglega fram til skatts á árunum 2006 til 2009.

„Ég held ró minni," sagði Messi á blaðamannafundi í morgun. „Hvorki ég né faðir minn komum nálægt svona hlutum," bætti Messi við og sagði lögfræðinga sína og fjárhagsráðgjafa alfarið sjá um fjárhagsmál þeirra.

„Við treystum þeim og þeir munu leysa úr flækjunni," sagði Messi. Hann viðurkenndi að hann skildi hvorki upp né niður í málinu og léti aðra um að tækla það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×