Fótbolti

Hótar að kaupa Messi ef Barcelona eltist við Silva

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Hinn moldríki Nasser Al-Khelaifi, eigandi franska stórliðsins PSG, hefur engan áhuga á því að missa varnarmanninn Thiago Silva til Barcelona.

Silva hefur verið sterklega orðaður við Barcelona í sumar en forráðamenn félagsins en PSG hafa engan áhuga á að selja kappann.

Fari svo að Barcelona bjóði þá lágmarksupphæð sem gerir PSG skylt að selja kappann er Al-Khelaifi reiðubúinn að gera slíkt hið sama við Lionel Messi, stórstjörnu Barcelona.

„Ef Barcelona snertir við klásúlunni í samningi Thiago Silva, mun ég gera slíkt hið sama við Messi,“ er haft eftir honum í frönskum fjölmiðlum.

Lágmarksupphæðin í samningi Messi er 215 milljón evrur, eða rúmir 34 milljarðir króna. Al-Khelaifi er þó líklega það auðugur að hann hafi fulla burði til að standa við stóru orðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×