Fótbolti

Tito Vilanova að hætta með Barcelona?| Blaðamannafundur í kvöld

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tito Vilanova að hætta?
Tito Vilanova að hætta? Mynd / Getty Images
Spænskir fjölmiðlar greina frá því að Tito Vilanova, knattspyrnustjóri Barcelona sé að láta af störfum vegna veikinda.

Boðað hefur verið til blaðamannafundir í kvöld á Nou Camp og líklega verður þá tilkynnt að Spánverjinn sé hættur með liðið.

Villanova hefur verið að glíma við krabbamein síðan í nóvember 2011 en hann fór í aðgerð í desember síðastliðnum.

Hann hefur verið töluvert frá vegna veikindanna en nú er talið að hann sé alfarið hættur afskiptum af knattspyrnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×