Fótbolti

Tito Vilanova er hættur með Barcelona

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tito Vilanova
Tito Vilanova Mynd / Getty Images
Tito Vilanova er hættur sem knattspyrnustjóri Barcelona vegna erfiðra veikinda sem hafa hrjáð Spánverjann.

Vilanova hefur verið að glíma við krabbamein síðan árið 2011 og missti hann af stórum hluta af síðasta tímabili.

Stjórinn hefur gengist undir margar rannsóknir í vikunni og kom í ljós að hann mun þurfa fara í langa krabbameinsmeðferð.

Hann hefur því tekið þá ákvörðun að hætta með liði. Nýr þjálfari verður kynntur til leiks eftir helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×