Fótbolti

Guardiola hefur trú á Messi og Neymar

Messi og Neymar berjast í landsleik.
Messi og Neymar berjast í landsleik.
Knattspyrnuheimurinn bíður spenntur eftir því að sjá Lionel Messi og Neymar spila saman hjá Barcelona næsta vetur. Margir efast þó um þeir geti spilað saman. Pep Guardiola, þjálfari Bayern og fyrrum þjálfari Barcelona, er þó ekki einn þeirra.

"Munu Messi og Neymar virka saman? Besti leikmaður allra tíma með frábærum leikmanni? Ég efast ekki um að þeir eigi eftir að verða góðir saman," sagði Guardiola.

Guardiola segir einnig að Spánverjir þurfi ekki að fara á taugum þó svo landslið þeirra hafi tapað illa gegn Brasilíu í úrslitum Álfukeppninnar.

"Framtíð spænska landsliðsins er björt. Spænskir þjálfarar eru að standa sig frábærlega og það eru að koma upp fullt af flottum, ungum leikmönnum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×