Fótbolti

Messi: Barcelona er fullkomið félag fyrir Neymar

Stefán Hirst Friðriksson skrifar
Neymar var valinn besti leikmaður Álfukeppninnar nú í sumar
Neymar var valinn besti leikmaður Álfukeppninnar nú í sumar
Eins og flestum er kunnugt gekk brasilíski snillingurinn Neymar til liðs við Barcelona nú á dögunum. Neymar fór á kostum með landsliði sínu í Álfukeppninni í sumar og eru þegar margir orðnir spenntir að sjá hann spila með Barcelona liðinu á næsta tímabili.   

Lionel Messi, leikmaður liðsins Barcelona, tjáði sig á dögunum um tilkomu Neymar til liðsins og sagðist hann fullur tilhlökkunar að að spila með honum og að hann myndi passa fullkomlega í liðið.

"Ég hef verið lánsamur að spila með mörgum frábærum leikmönnum. Ég hef enga trú á öðru en að Neymar muni passa fullkomlega inn í liðið okkar. Ég held að Barcelona sé rétti klúbburinn fyrir hann.   




Fleiri fréttir

Sjá meira


×