Fótbolti

Arnór á leið til Helsingborg

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór Smárason.
Arnór Smárason. Nordic Photos / Getty Images
Arnór Smárason er á leið í sænsku úrvalsdeildina og mun ganga til liðs við Helsingborg samkvæmt dönskum fjölmiðlum.

Arnór hefur verið á mála hjá Esbjerg í Danmörku en samningur hans við félagið rann nýverið út. Hann hefur áður sagt að hann væri í viðræðum við lið í Danmörku og Svíþjóð.

Bold.dk fullyrðir nú í dag að Arnór muni í dag skrifa undir samning við Helsingborg en liðið varð Svíþjóðarmeistari árið 2011. Alfreð Finnbogason lék einnig með liðinu í fyrra við góðan orðstír, áður en hann hélt til Heerenveen í Hollandi.

Helsingborg er sem stendur í öðru sæti sænsku deildarinnar, einu stigi á eftir IFK Gautaborg en liðið á einnig leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×