Fótbolti

Messi: Mourinho mun gera frábæra hluti með Chelsea

Stefán Árni Pálsson skrifar
Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi telur að Jose Mourinho, nýráðinn knattspyrnustjóri Chelsea, eigi eftir að ná góðum árangri með þá bláu á næsta tímabili.

Messi telur reyndar einnig að Real Madrid eigi eftir að bæta sinn leik eftir að Mourinho yfirgaf félagið fyrir Chelsea.

Carlo Ancelotti tók við Real Madrid í vikunni.

„Spænska deildin er gríðarlega erfið og verður það áfram,“ sagði Messi.

„Mourinho var magnaður stjóri hér á Spáni en það vita allir hvað býr í Ancelotti. Ég tel að Mourinho eigi eftir að gera frábæra hluti hjá Chelsea.“

Neymar gekk í raðir Barcelona á dögunum.

„Hann er magnaður leikmaður sem mun koma með nýjar áherslur að okkar borði. Við getum vel leikið saman hjá Barcelona og ég hlakka til að byrja æfa með honum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×