Fótbolti

Zidane: Það þarf heimsmet til að ná í Bale

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gareth Bale í leik með Real Madrid
Gareth Bale í leik með Real Madrid Mynd / Getty Images

Frakkinn Zinedine Zidane gerir sér grein fyrir því að Real Madrid mun þurfa slá heimsmet ef liðið ætlar sér að klófesta Gareth Bale frá Tottenham Hotspurs.

Zidane starfar sem yfirmaður íþróttamála hjá Real Madrid en talið er að liðið þurfi að greiða 85 milljónir punda fyrir hinn magnaða Gareth Bale.

„Verðmiðinn á Bale kemur manni ekkert á óvart,“ sagði Zidane við fjölmiðla á Spáni.

„Það er ómögulegt að eiga eins gott tímabil og Bale gerði og vera ekki orðaður við öll bestu liðið í Evrópu.“

„Það eru líklega fimm stórlið í heiminum sem hafa efni á því að klófesta Bale. Real Madrid er eitt af því og við ætlum okkur að berjast fyrir honum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×