Fótbolti

Real Madrid keypti Brassa

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images

Brasilíumaðurinn Casemiro hefur gert fjögurra ára samning við Real Madrid en hann var í láni hjá félaginu á síðustu leiktíð.

Casemiro er tvítugur sóknarþenkjandi miðjumaður sem spilaði aðallega með varaliði Real Madrid í vetur.

Hann var á mála hjá Sao Paolo en var lánaður til Real Madrid í desember síðastliðnum. Madrídingar ákváðu svo að kaupa hann nú í lok leiktíðarinnar.

Casemiro á fimmtán leiki að baki með U-20 liði Brasilíu. Hann er annar leikmaðurinn sem kemur til Real Madrid í sumar en hinn er bakvörðurinn Dani Carvajal sem kom frá Bayer Leverkusen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×