Fótbolti

Valdes verður í marki Barca á næsta tímabili

Stefán Árni Pálsson skrifar
Victor Valdes í leik með Barcelona
Victor Valdes í leik með Barcelona Mynd / Getty Images
Forráðamenn Barcelona hafa nú fengið það staðfest að markvörðurinn Victor Valdes mun verja mark liðsins út næsta tímabil.

Valdes á eitt ár eftir af samningi sínum við Barca og ætlar leikmaðurinn að virða þann samning.

Þessi spænski markvörður hafði áður tilkynnt forráðamönnum Barcelona að hann ætli sér að yfirgefa félagið en tímasetningin var óljós.

Leikmaðurinn neitaði ávallt að skrifa undir nýjan samning við Barcelona og gaf það síðar út að hann ætlaði sér að fara frá félaginu.

„Við höfum fengið það staðfest frá umboðsmanni leikmannsins að hann ætli sér að klára samning sinn við félagið. Það eru verulega góðar fréttir fyrir okkur,“ sagði Sandro Rosell, forseti Barcelona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×