Fótbolti

Schuster tekur við Malaga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bernd Schuster þegar hann stjórnaði Real Madrid
Bernd Schuster þegar hann stjórnaði Real Madrid Mynd / Getty Images
Bernd Schuster mun taka við liði Malaga í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en þetta hefur talsmaður félagsins staðfest við spænska fjölmiðla.

Þessi 53 ára Þjóðverji hefur stjórnað fjöldann allan af liðum en frægastur er hann fyrir að hafa stýrt Real Madrid.

Schuster hefur einnig stjórnað Köln, Xerez, Shakhtar Donetsk, Levante, Getafe og Beşiktaş. Stjórinn þekki því spænsku deildina vel.

Schuster mun taka við af Manuel Pellegrini sem er á leiðinni til Manchester City.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×