Fótbolti

Mörg þúsund manns tóku á móti Neymar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Neymar á Neu Camp í dag.
Neymar á Neu Camp í dag. Mynd. / Getty Images

Knattspyrnumaðurinn Neymar  skrifaði í dag undir fimm ára samning við spænsku meistarana í Barcelona. Kaupverðið ku vera 48,5 milljónir punda sem félagið greiðir til Santos en Neymar hefur leikinn allan sinn feril hjá brasilíska félaginu.

Í dag var leikmaðurinn síðan kynntur á Neu Camp fyrir framan mörg þúsund manns en það er nokkuð ljóst að ný stjarna er fædd í Barcelona.

Neymar flýgur strax aftur heim til Brasilíu eftir daginn í dag þar sem hann hittir fyrir landa sína í undirbúning fyrir landsliðsverkefni.

Hér að ofan má sjá myndir frá Neu Camp í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×