Menning

Ólafur Elíasson sýnir Tiltrú á Íslandi

Bergsteinn Sigurðsson skrifar
Ólafur sýnir fjögur ný verk á sýningunni í i8.
Ólafur sýnir fjögur ný verk á sýningunni í i8. Fréttablaðið/Valli

Ólafur Elíasson myndlistarmaður sýnir ný verk á sýningunni Tiltrú sem opnar í galleríinu i8 fimmtudaginn 6. júní.

Þetta er fjórða einkasýning Ólafs í galleríinu og samanstendur af fjórum verkum, sem öll fjalla um staðsetningu mannsins í veröldinni, skynjun hans og upplifun.

Ljósmyndaserían The Hut Series inniheldur myndir af fjallakofum á hálendi Íslands. Myndirnar voru teknar að vori, áður en snjóa leysir og jafnvel áður en hlerar hafa verið teknir frá gluggum.

Glerverkið Your fading self (west) er frístandandi í sýningarrýminu og sést utan frá götu. Það stendur á steyptri uppistöðu, er að hluta gegnsætt og að hluta hjúpað daufum fölva sem setur sjónina úr jafnvægi um stund.

Þriðja verkið er líka leikur að sjónskynjun. Fimm þríhyrndir speglar eru festir á einn vegg gallerísins og eru allir kenndir við hik eða efa (Hesitant movement sky; Hesitant movement ground, Hesitant movement up; Hesitant Movement right og Hesitant you).

Fjórða verkið nefnist Trust compass og er áttaviti gerður er úr rekaviði og látúnsstöngum sem halda sívölum seglum.

Sýningin stendur til 17. ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.