Fótbolti

Villarreal aftur í deild þeirra bestu

Stefán Hirst Friðriksson skrifar

Villarreal tryggði sér sæti í deild þeirra bestu á Spáni eftir sigur á Almeria í gærdag. Liðið féll um deild í fyrra en tókst að endurheimta úrvalsdeildarsætið í fyrstu tilraun.

Leikur liðsins við Almeria var úrslitaleikur um annað sæti deildarinnar en liðin voru jöfn að stigum fyrir leik.

Leikurinn endaði með 1-0 sigri Villarreal þar sem Jonathan Pereira skoraði. Almeria þarf því að fara í umspil um laust sæti í efstu deild á næsta tímabili.

Gengi Villarreal hefur verið upp og niður undanfarin ár en liðið komst meðal annars í undanúrslit Meistaradeildarinnar árið 2006.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×