Fótbolti

Bale er fæddur til þess að spila með Real Madrid

Florentino Perez, forseti Real Madrid, fer ekki leynt með aðdáun sína á Gareth Bale, leikmanni Tottenham, og er fastlega búist við því að Real muni reyna að kaupa leikmanninn.

"Gareth Bale er fæddur til þess að spila með Real Madrid," sagði Perez en ummæli hans eru aðeins sögð þýða eitt. Perez ætli sér að kaupa Bale.

Þegar hefur verið greint frá því að Zinedine Zidane hafi fengið það hlutverk að sjá um kaupin á Bale en Tottenham ætlar engu að síður að berjast fyrir því að halda leikmanninum.

Bale átti frábært tímabil með Tottenham og var kosinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×