Fótbolti

Vantaði alla auðmýkt í Mourinho

vísir/getty

Fyrrum leikmaður Real Madrid, Guti, er ekki sáttur við portúgalska þjálfarann, Jose Mourinho, sem skilur við Real Madrid eftir sitt þriðja og lélegasta tímabil með liðið.

Real mun enda í öðru sæti deildarinnar, liðið tapaði í bikarúrslitum gegn Atletico og féll úr leik í undanúrslitum Meistaradeildarinnar gegn Dortmund.

"Þegar þú ert að klára þitt lélegasta tímabil þá hefði það verið gott fyrir alla ef Mourinho hefði sýnt einhverja auðmýkt," sagði Guti.

"Við áttum von á miklu frá Mourinho. Við áttum ekki bara von á titlum. Þetta tímabil er mikil vonbrigði fyrir alla stuðningsmenn Real.

"Ég veit ekki um allt sem gerist á bak við tjöldin en ef þú ert með fjögurra ára samning og lætur þig hverfa um leið og tækifæri gefst má vel halda því fram að menn séu að flýja af hólmi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×