Fótbolti

Mourinho kvaddi með sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP

Real Madrid vann 4-2 sigur á Osasuna í lokaleik liðsins undir stjórn knattspyrnustjórans Jose Mourinho.

Mourinho er ekki vinsælasti maðurinn í Madríd þessa dagana en var þó studdur af hópi stuðningsmanna félagsins á vellinum í dag. Mourinho veifaði til þeirra í stutta stund eftir leikinn í kvöld en labbaði svo út af.

Gonzalo Higuain og Mickael Essien komu Madrídingum í 2-0 forystu áður en Osasuna jafnaði metin með tveimur mörkum í upphafi síðari hálfleiks. Real tryggði sér svo sigur með mörkum þeirra Karim Benzema og Jose Callejon.

Þrátt fyrir mörkin sex bar leikurinn þess merki að ekkert var undir. Þetta var einnig tímabil vonbrigða hjá Madrídingum sem misstu af öllum stóru titlunum í ár.

Talið er líklegast að Mourinho muni næst taka við Chelsea, hans gamla félagi á Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×