Fótbolti

Mourinho og Ronaldo dæmdir í bann

Mourinho og Ronaldo.
Mourinho og Ronaldo.

Þjálfari Real Madrid, Jose Mourinho, og leikmaður liðsins, Cristiano Ronaldo, voru í dag dæmdir í tveggja leikja bann í spænska bikarnum.

Báðir fengu að líta rauða spjaldið í bikarúrslitaleiknum gegn Atletico sem Real tapaði.

Ólíklegt er að Mourinho taki bannið út á næstunni þar sem hann er á förum frá Real og væntanlega á leið til Chelsea.

Eins og áður segir á bannið aðeins við í bikarnum og þeir geta því báðir tekið þátt í síðustu tveim leikjum liðsins í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×