Fótbolti

Real Madrid missti niður 2-0 forystu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/NordicPhotos/Getty

Real Madrid varð að sætta sig við 3-3 jafntefli á móti Real Sociedad í næstsíðustu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Real Madrid komst í 2-0 og 3-2 en Xabi Prieto tryggði Real Sociedad jafntefli á þriðju mínútu í uppbótartíma.

Gonzalo Higuain (6. mínúta) og Jose Callejon (57. mínúta) komu Real Madrid í 2-0 í þessum leik en Xabi Prieto og Antoine Griezmann jöfnuðu metin.

Sami Khedira kom Real Madrid í 3-2 eftir samvinnu við landa sinn Mesut Özil en Real Sociedad var í stórsókn á lokakafla leiksins enda þurfti liðið nauðsynlega á stigum að halda í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni.

Barcelona vann í kvöld þannig að Real Madrid er nú fimmtán stigum á eftir Börsungum þegar aðeins ein umferð er eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×