Fótbolti

Ribery: Við skuldum stuðningsmönnum Bayern sigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Franck Ribery.
Franck Ribery. Mynd/Nordic Photos/Getty

Frakkinn Franck Ribery er einn af þeim leikmönnum þýska liðsins Bayern München sem hafa tapað tveimur úrslitaleikjum Meistaradeildarinnar á síðustu þremur árum.

Borussia Dortmund og Bayern München mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Wembley í kvöld en leikurinn hefst klukkan 18.45 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Upphitun Þorsteins Joð og félaga hefst klukkan 17.45.

„Við verðum að vinna fyrir okkar stuðningsfólk, fyrir klúbbinn og allt liðið. Við skuldum stuðningsmönnum Bayern sigur," sagði Franck Ribery við AFP.

„Þetta er okkar þriðji leikur á fjórum árum en núna erum við komnir með miklu meiri reynslu að spila svona leik. Þetta er ekkert nýtt fyrir okkur og við vitum hvað við þurfum að gera til þess að vinna Dortmund," sagði Ribery.

„Ef við spilum eins og í undanúrslitunum á móti Barcelona þá eigum við góða möguleika á því að vinna," sagði Ribery en Bayern vann þá Barcelona 7-0 samanlagt í tveimur leikjum.

Franck Ribery hefur átt mjög gott tímabil með Bayern og verður í lykilhlutverki í leiknum á eftir.


Tengdar fréttir

Gummi Ben hitti hressa stuðningsmenn Dortmund

Þýsku liðin Borussia Dortmund og Bayern München mætast í kvöld í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fer fram á Wembley-leikvanginum í London. Guðmundur Benediktsson er í London en hann mun lýsa leiknum á Stöð 2 Sport í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18.45 en á undan verður Þorsteinn Joð með upphitunarþátt fyrir þennan sögulega leik í knattspyrnusögu Þýskalands.

Ætlar að halda með með Bayern í kvöld

Nico Rosberg, ökumaður Mercedes-liðsins í Formúlu 1, ætlar að halda með Bayern Munchen í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld. Bayern mætir Borussia Dortmund á Wembley í leik um eftirsóttasta titil Evrópu.

Jürgen Klopp, þjálfari Dortmund: Stærsti leikur lífs míns

Jürgen Klopp, þjálfari þýska liðsins Borussia Dortmund, er kominn með lið í fyrsta sinn í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Lærisveinar hans mæta Bayern München í úrslitaleik á Wembley í kvöld. Klopp kallaði fram hlátur á blaðamannafundi fyrir leikinn.

Á Dortmund einhverja möguleika?

Bayern sýndi mátt sinn og megin þegar liðið rassskellti stjörnum prýtt lið Barcelona og liðið mætir Dortmund í úrslitaleik á Wembley í dag. Pressan er samt öll á Bæjurum, sem hafa tapað tveimur úrslitaleikjum á þremur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×