Fótbolti

Neymar gerir fimm ára samning við Barcelona

Stefán Árni Pálsson skrifar
Neymar í leik með Santos
Neymar í leik með Santos Mynd. / Getty Images

Neymar hefur gert fimm ára samning við knattspyrnufélagið Barcelona en þetta staðfesti spænska félagið á vefsíðu sinni í nótt.

Leikmaðurinn hefur einnig staðfest fréttirnar með færslu sinni á samskiptamiðlinum Twitter. Santos og Barcelona hafa því loks náð samkomulagi um kaup og kjör á leikmanninum en Neymar hefur verið orðaður við félagið í nokkur ár.

Þessi 21 árs sóknarmaður hefur verið besti leikmaður brasilísku deildarinnar undarfarinn tímabil og leikið með Santos allan sinn feril. Það var í raun alltaf bara tímaspursmál hvenær þessi frábæri leikmaður skildi fara til Evrópu.

Leikmaðurinn mun skrifa undir hjá Barcelona á morgun en ekkert kaupverð hefur verið gefið upp að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×