Fótbolti

Gefur Real Madrid undir fótinn

Þó svo margt hafi bent til þess upp á síðkastið að Gareth Bale ætli sér að vera áfram hjá Tottenham þá hefur umboðsmaður hans verið að gefa Real Madrid undir fótinn.

"Ef forseti Real Madrid hefur áhuga á Bale þá væri það mikill heiður og við myndum hlusta á hvað hann hefði að segja. Hann er samt samningsbundinn Tottenham," sagði umbinn Jonathan Barnett í spænskum sjónvarpsþætti.

"Við megum samt ekki tala við neitt félag og höfum ekki talað við neinn. Ég veit ekki einu sinni hvort það sé búið að gera tilboð í Bale."

Barnett segir að Bale sé mun verðmætari en Brasilíumaðurinn Neymar sem er nýbúinn að semja við Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×