Fótbolti

Vilanova á að hætta með Barcelona

Johan Cruyff.
Johan Cruyff.

Hollenska goðsögnin Johan Cruyff er ekki vön því að liggja á skoðunum sínum. Hann hefur nú lýst þeirri skoðun sinni að Tito Vilanova eigi að hætta að þjálfa Barcelona.

Vilanova missti af ansi mörgum leikjum með liðinu á síðustu leiktíð þar sem hann var í krabbameinsmeðferð.

"Það er ekki mjög gáfulegt fyrir mann í hans ástandi að halda áfram að þjálfa. Ég hef sjálfur farið í hjartaaðgerð. Er hægt að vera þjálfari Barcelona ef maður er ekki með fulla heilsu? spyr Cruyff.

"Ég myndi segja Tito að hugsa um sjálfan sig. Hann er ekki eins sterkur og reyndur og Pep Guardiola var. Heilsan gengur fyrir og hún er ekki í lagi hjá honum."

Cruyff er líka ekkert sérstaklega hrifinn af Jose Mourinho, þjálfara Real Madrid.

"Liðið gat ekki gert neitt miðað við það hvernig hann hagaði sér. Það er ekki rétt að rífast við sinn besta mann. Ég tel að hann hafi gengið allt of langt. Mourinho hefur ekki gert Real Madrid neina greiða."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×