Fótbolti

Við munum sakna Mourinho

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Brasilíumaðurinn Dani Alves, leikmaður Barcelona, segir að það verði missir fyrir spænsku úrvalsdeildina ef Jose Mourinho hættir hjá Real Madrid í sumar.

Mourinho er sagður á útleið hjá spænsku risunum og er talið líklegast að hann muni snúa aftur til Chelsea.

„Við munum sakna hans. Spænska deildin mun sakna hans því hann er frábær keppinautur. Ég hef aldrei verið í sama liði og hann en við erum báðir sigurvegarar,“ sagði Alves í samtali við spænska miðla.

„Hann er einn metnaðarfyllsti þjálfarinn í deildinni og hefur lífgað upp á deildina. Hann er litríkur karakter og ég held að fjölmiðlar muni fyrst og fremst sakna hans.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×