Fótbolti

Skyldusigur Börsunga í mígandi rigningu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Leikmenn og stuðningsmenn Barcelona fagna öðru marki liðsins í leiknum.
Leikmenn og stuðningsmenn Barcelona fagna öðru marki liðsins í leiknum. Nordicphotos/Getty

Nývangur var aðeins hálffullur þegar Barcelona lagði Real Valladolid 2-1 að velli í 36. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Pedro kom heimamönnum á bragðið á 21. mínútu í rigningunni í Katalóníu og forystan varð 2-0 skömmu fyrir hlé þegar gestirnir skoruðu sjálfsmark.

Victor Perez hleypti smá spennu í leikinn með marki úr vítaspyrnu seint í leiknum. Heimamenn fögnuðu hins vegar sigri. Tvær umferðir eru eftir af deildinni en Barcelona hefur þegar tryggt sér titilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×