Fótbolti

Ég gat ekki teflt Messi fram

Tito Vilanova, þjálfari Barcelona, tók þá erfiðu ákvörðun í gær að setja Lionel Messi á bekkinn í leiknum gegn Bayern München. Messi lék með Barcelona um síðustu helgi og bjuggust flestir við honum í liðinu í gær.

Messi hefur verið að glíma við erfið meiðsl aftan í læri undanfarnar vikur og hefur einfaldlega ekki náð sér góðum.

"Leo spilaði um helgina því honum leið betur en í lok leiksins fór honum að líða eitthvað furðulega. Hann æfði með okkur í vikunni en leið ekki vel. Það var því ekki hægt að láta hann spila með okkur gegn Bayern," sagði Vilanova.

Þjálfarinn gerir lítið úr því að Barcelona-liðið sé of háð Messi.

"Öll lið þurfa styrkingu á hverju ári en við þurfum ekki að breyta miklu. Við þurfum frekar að ná þeim mönnum heilum sem hafa verið meiddir og ekki í toppstandi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×