Fótbolti

Cristiano Ronaldo með tvö mörk í markaleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo fagnar.
Cristiano Ronaldo fagnar. Mynd/NordicPhotos/Getty
Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk þegar Real Madrid vann 4-3 sigur á Real Valladolid í miklum markaleik á Estadio Santiago Bernabéu í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.  Sigur Real Madrid þýðir að Barcelona getur ekki tryggt sér titilinn á morgun þótt að það sé löngu ljóst að Barca-menn séu búnir að vinna spænsku deildina.

Real Valladolid komst í 1-0 eftir 8 mínútna leik og náði að jafna metin í 2-2 fyrir hálfleik. Real komst í 4-2 í seinni hálfleik áður en Valladolid-menn skoruðu síðasta mark leiksins.

Cristiano Ronaldo skoraði annað mark Real á 32. mínútu með skalla eftir sendingu Angel Di Maria sem átti einnig þátt í fyrsta marki Real Madrid sem var sjálfsmark á 26. mínútu.

Kaka kom Real Madrid í 3-2 á 49. mínútu og Ronaldo skoraði fjórða markið með skalla eftir hornspyrnu Mesut Özil á 70. mínútu.

Cristiano Ronaldo hefur nú skorað 33 deildarmörk á tímabilinu en er enn 11 mörkum á eftir Lionel Messi. Real Madrid er tíu stigum á eftir Barcelona sem á leiki inni á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×