Körfubolti

Justin og Pálína valin best annað árið í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Justin Shouse og Pálína Gunnlaugsdóttir.
Justin Shouse og Pálína Gunnlaugsdóttir.
Justin Shouse, leikmaður bikarmeistara Stjörnunnar og Pálína Gunnlaugsdóttir, fyrirliði Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur, voru í kvöld valin leikmenn ársins í Dominos-deildum karla og kvenna á lokahófi KKÍ sem fram fór í Laugardalshöllinni.

Þetta er annað árið í röð sem þau hljóta þessi verðlaun en Pálína var einnig valin best árið 2008 og er því að hljóta þessi eftirsóttu verðlaun í þriðja sinn á ferlinum.

Pálína var einnig valin besti varnarmaðurinn hjá konunum líkt og í fyrra en Þórsarinn Guðmundur Jónsson hlaut þau verðlaun einnig annað árið í röð hjá körlunum.

Keflavík átti einnig besti unga leikmanninn hjá konum sem var valin Sara Rún Hinriksdóttir. Elvar Már Friðriksson var valin besti ungi leikmaður Domino’s-deildar karla en hann var einnig í fimm manna úrvalsliði tímabilsins.

Lele Hardy hjá Njarðvík og Aaron Broussard hjá Grindavík voru valin bestu erlendu leikmenn deildarinnar og bestu þjálfararnir voru kosnir Sigurður Ingimundarson þjálfari kvennaliðs Keflavíkur og Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari karlaliðs Grindavíkur. Sigmundur Már Herbertsson var valinn besti dómarinn.

Verðlaunahafar í Domino's deild kvenna:

Prúðasti leikmaður

Ragna Margrét Brynjarsdóttir – Valur

Besti ungi leikmaður

Sara Rún Hinriksdóttir - Keflavík

Besti erlendi leikmaður

Lele Hardy - Njarðvík

 

Besti varnarmaður

Pálína Gunnlaugsdóttir -  Keflavík

 

Besti þjálfari

Sigurður Ingimundarson - Keflavík

 

Úrvalsliðið

Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík

Hildur Sigurðardóttir - Snæfell

Kristrún Sigurjónsdóttir – Valur

Bryndís Guðmundsdóttir - Keflavík

Hildur Björg Kjartansdóttir – Snæfell

Besti leikmaður

Pálína Gunnlaugsdóttur -  Keflavík



Verðlaunahafar í Domino's deild karla:

Prúðasti leikmaður

Darri Hilmarsson – Þór Þorlákshöfn

Besti ungi leikmaður

Elvar Már Friðriksson – Njarðvík

Besti erlendi leikmaður

Aaron Broussard - Grindavík

 

Besti varnarmaður

Guðmundur Jónsson – Þór Þorlákshöfn

 

Besti dómari

Sigmundur Már Herbertsson

Besti þjálfari

Sverrir Þór Sverrisson - Grindavík

Úrvalsliðið

Justin Shouse - Stjarnan

Elvar Már Friðriksson – Njarðvík

Jóhann Árni Ólafsson - Grindavík

Jón Ólafur Jónsson – Snæfell

Sigurður Gunnar Þorsteinsson- Grindavík

Besti leikmaður

Justin Shouse - Stjarnan




Fleiri fréttir

Sjá meira


×