Fótbolti

Di Stefano yngir upp

Guðmundur Marnó Ingvarsson skrifar
Mynd/Nordic Photos/Getty
Argentínska goðsögnin Alfredo Di Stefano er ekki hættur að skora þó leikmannaferli hans hjá Real Madrid sé fyrir löngu lokið. Markahrókurinn mikli sem er orðinn 86 ára gamall hyggst kvænast 36 ára gamalli konu.

Unga þokkagyðjan heitir Gina Gonzalez og kemur frá Kosta Ríka. Di Stefano tjáði spænska dagblaðinu El Mundo frá ráðahugnum.



„Ég er ástfanginn og ætla að kvænast Gina. Ég er 86 ára gamall en ungur í anda,“ sagði Di Stefano.



Þau kynntust þegar Gina hjálpaði Di Stefano við undirbúning bókar hans. Hann segir hana hafa fallið fyrir kímnigáfu sinni. Þau hyggjast ganga í hjónaband innan mánaðar.



„Mér er sama hvað börnunum mínum finnst. Líf mitt skiptir mig mestu máli og ekkert annað. Fyrir utan að valda vandræðum. Þau eiga eftir að láta mig heyra það en ég mun svara af hreinskilni. Ef þau vilja spyrja spurninga þá gera þau það og ég mun útskýra þetta fyrir þeim,“ sagði Di Stefano sem kjörinn var knattspyrnumaður Evrópu 1957 og 1959.

Hann skoraði í fimm úrslitaleikjum Evrópukeppni Meistaraliði í röð frá 1956 til 1960 og Real Madrid vann öll árin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×