Fótbolti

Mourinho svarar Pepe fullum hálsi

Mourinho og Pepe.
Mourinho og Pepe.
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, er allt annað en sáttur við leikmann sinn, Pepe, en varnarmaðurinn sagði að Mourinho ætti að bera meiri virðingu fyrir markverðinum Iker Casillas.

Casillas hefur mátt sætta sig við bekkjarsetu síðustu mánuði en Diego Lopez hefur varið mark Real og gert það vel. Casillas hefur verið aðalmarkvörður liðsins undanfarin ár.

"Ummæli Pepe? Það er auðvelt að greina hvað hann er að segja. Pepe er í vandræðum og vandamál hans heitir Raphael Varane," sagði Mourinho ákveðinn.

"31 árs leikmaður hefur misst stöðu sína til 19 ára leikmanns. Þannig er gangur lífsins. Hver hafði hugrekkið til þess að tefla Varane fram? Það var ég."

Mourinho talaði einnig um markvarðarmálin en hann hefur lítið viljað gera af því.

"Ég er hrifnari af Lopez en Casillas sem markverði. Það er ekkert persónulegt í gangi. Ég er einfaldlega hrifnari af Lopez og því vel ég hann í markið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×