Fótbolti

Özil með tvö í sigri Real Madrid

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/AFP
Real Madrid hvíldi margar kanónur þegar liðið lagði Real Betis að velli 3-1 á heimavelli í dag.

Mesut Özil kom heimamönnum í Real á bragðið með laglegu marki undir lok fyrri hálfleiks. Özil fékk þó frábæra sendingu inn fyrir vörnina frá Karim Benzema og kláraði færið vel.

Karim Benzema var sjálfur á ferðinni á 57. mínútu en gestirnir veittu Real Madrid harða keppni og sköpuðu sér fín færi. Þeir minnkuðu muninn úr vítaspyrnu stundarfjórðungi fyrir leikslok og skutu í slá á lokamínútunum.

Özil var svo aftur á ferðinni í viðbótartíma og setti boltann yfir línuna af stuttu færi. 3-1 sigur Real Madrid í höfn og fínt veganesti fyrir leikinn gegn Borussia Dortmund í undanúrslitum Meistaradeildar í Evrópu í Þýskalandi í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×