Fótbolti

Messi fékk falleinkunn hjá Bild

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Þýska götublaðið sýndi stórstjörnunni Lionel Messi enga vægð í einkunnagjöf sinni fyrir leik Bayern og Barcelona í Meistaradeild Evrópu í gær.

Fimm leikmenn Bayern fengu hæstu einkunn en Messi fékk þá allra lægstu sem hægt er að fá. „Messi sýndi engin klókindi, var algjörlega hugmyndalaus og ógnaði aldrei markinu,“ sagði í umsögn blaðsins.

Þeir sem fengu hæstu einkunn voru Philipp Lahm, Javi Martinez, Bastian Schweinsteiger, Arjen Robben og Thomas Müller.

Bild gefur einkunnir öllu jöfnu á skalanum 1-5, þar sem 1 er best. Blaðið gaf engu að síður Messi 6 í einkunn. Aðrir leikmenn Barcelona fá annað hvort 4 eða 5 en langflestir leikmenn Bayern fá 1 eða 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×