Fótbolti

Hvaða lið myndi ekki sakna Messi?

Tito Vilanova.
Tito Vilanova.
Tito Vilanova, þjálfari Barcelona, segir að það sé ekkert óeðlilegt við það að liðið sé að mörgu leyti háð Lionel Messi. Hann segir að öll lið myndu gera það ef þau ættu slíkan leikmann.

Messi hefur verið að glíma við meiðsli síðustu vikur en snéri aftur á völlinn í Meistaradeildarleiknum gegn Bayern í vikunni. Þar virtist hann ekki vera alveg búinn að jafna sig, átti slakan leik og Barcelona tapaði stórt, 4-0.

"Það er ósköp eðlilegt að fólk taki eftir því að við söknum Messi. Hvaða lið myndi ekki sakna Messi. Það er ekkert nýtt að við stólum á hann og það er líka eðlilegt þar sem hann er besti leikmaður heims. Vonandi verðum við háðir honum mörg ár í viðbót," sagði Vilanova.

"Ég er ekki á þvi að ákveðnu gullaldarskeiði hjá Barcelona sé að ljúka. Ef við værum ekki enn með frábært lið þá værum við ekki að verða meistarar á Spáni og nálægt því að vinna Meistaradeildina líka."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×