Fótbolti

Ronaldo neitar frétt um framhjáhald

Portúgalinn Cristiano Ronaldo er mikið í fréttunum í dag en slúðurblöð héldu því fram í morgun að hann hefði haldið fram hjá með brasilískri fyrirsætu tveim dögum fyrir leikinn gegn Dortmund í Meistaradeildinni.

Brasilíska stelpan heitir Andressa Urach og er oft kölluð "Miss BumBum". Hún hélt áðurnefndu fram í viðtali við The Sun.

Ronaldo er eðlilega ekki hrifinn af fréttinni enda er hann í sambandi með rússnesku fyrirsætunni, Irina Shayk.

Ronaldo sagði á Twitter-síðu sinni að það væri ekkert að marka þessa frétt og að hann undraði sig á því að hún kæmi út svo skömmu fyrir mikilvægan leik.

"Ég var á þessu hóteli sem stelpan talar um en til þess að gefa viðtal. Það getur viðkomandi blaðamaður vottað fyrir. Annað er hreinn uppspuni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×