Fótbolti

Klopp ánægður með að mæta Madrid

Klopp ásamt Mario Götze.
Klopp ásamt Mario Götze.
Jürgen Klopp, þjálfari Dortmund, er ánægður með að hafa dregist gegn Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Liðin mættust einnig í riðlakeppninni fyrr í vetur. Þá vann Dortmund heimaleikinn og gerði jafntefli á útivelli.

"Það er ánægjulegt að mæta liði sem við þekkjum. Allir andstæðingarnir hefðu alltaf verið erfiðir en það er gott að mæta Madrid því það er eina liðið sem við höfum unnið í vetur," sagði Klopp.

Dortmund komst í undanúrslitin á umdeildan hátt er liðið skoraði ólöglegt sigurmark gegn Malaga í uppbótartíma og hafa verið mikil læti út af því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×