Fótbolti

Messi og Iniesta hvíla í kvöld

Messi fagnar gegn Zaragoza fyrr í vetur.
Messi fagnar gegn Zaragoza fyrr í vetur.
Það verður enginn Lionel Messi í liði Barcelona í dag er það spilar gegn Real Zaragoza. Stórstjarnan er enn að jafna sig á meiðslum.

Messi missti af síðasta deildarleik vegna meiðslanna en píndi sig þó til þess að spila í síðari hálfleik gegn PSG í Meistaradeildinni.

Læknar Barcelona vilja ekki reyna meira á hann og hafa því ákveðið að hvíla hann.

Hann er ekki eini leikmaður Barcelona sem hvílir í dag því Andres Iniesta og Jordi Alba eru líka heima hjá sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×