Fótbolti

Real Madrid með auðveldan sigur á Bilbao

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mynd / Getty Images
Real Madrid var ekki í neinum vandræðum með Athletic Bilbao þegar liðið bar sigur úr býtum 3-0 á  San Mamés, heimavelli Bilbao.

Cristiano Ronaldo skoraði fyrsta mark leiksins á 2. mínútu beint úr aukaspyrnu og var markið virkilega glæsilegt.

Staðan var 1-0 í hálfleik en Ronaldo var aftur á ferðinni tuttugu mínútum fyrir leikslok þegar hann skallaði boltann í netið eftir frábæra fyrirgjöf frá Xabi Alonso.

Það var síðan Gonzalo Higuaín sem skoraði þriðja og síðasta mark leiksins fimmtán mínútum fyrir leikslok eftir frábæra stungusendingu frá Ronaldo.

Niðurstaðan því 3-0 sigur Real Madrid sem er sem fyrr í öðru sæti deildarinnar með 68 stig, þrettán stigum á eftir Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×